Friday, April 22, 2011

Jæja, nú hefst bloggið fyrir einhverri alvöru.

Við erum búin að koma okkur fyrir í nýju íbúðinni, og ég búinn að tengja það helsta í bílskúrnum. BigDave kominn á sinn stað, skrifborðið og skjáirnir og m.a.s. auka fartölvan sem ég hef notað þegar ekkert annað býðst + router sem ég get notað sem þráðlausan aðgangspunkt.

Fékk félagsskap í herbergið í dag


Næsta svæði við hýsir gamla magnarann og plötuspilarann. Aðal vandamálið hérna snýr að plássleysi. Ég sé það í hendi mér að mig vantar einhvern skáp til þess að hýsa magnarann, plötuspilarann og prentarann, og ekki væri verra ef ég get geymt einhverjar bækur þar líka.

Ekki alveg að gera sig


Það tengist svoldið inná sjónvarp og tengdar græjur. Mig vantar sömuleiðis stað til þess að geyma sjónvarpsræfillinn og spilarann, og aftur væri ekki verra þó allt klabbið kæmist þar fyrir.

Það er heilmikið fleira sem ég myndi vilja gera, en hér er allavega það mest akút. Framhald síðar...

PS. Ég er að leita að einhverju góðu nafni fyrir herbergið. "Dyngjan" er heldur kvenlegt að mínu mati og "Lair" er ekki íslenska. Þigg allar ábendingar.